Sjálfur Guð (Af baggalút)

Guð Almáttugur, skapari (m.a. himins og jarðar) mun ekki bænheyra Íslendinga nema lausn fáist í deiluna um Icesave reikninganna svokölluðu.

Að sögn Guðs segist hann vel skilja gremju Breta og Hollendinga í garð Íslendinga, sjálfur hafi hann átt litla upphæð á einum slíkum sem hann hafði hugsað sér að geyma þar til hann fer á eftirlaun, árið 3912.

Er þetta enn eitt áfallið fyrir íslenskt efnahagslíf, en almennt er talið að það eina sem geti bjargað því sé hressilegt kraftaverk.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

magnús darling

Þú bjargaðir deginum, ég var við það að leggjast í þunglyndi(rigning, rok myrkur, tannlæknar osfrv...)assgoti gott hjá þér, haltu þessu áfram.

kveðja Stína

Kristín (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 20:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband