Lóðarí

Það er ekki tekið út með sældinni þegar lóðarí er í gangi hér í hverfinu. Sérstaklega þegar ein ákveðin tík á ákveðnu horni fer á lóðari. Það skeður oft á ári en eðlilegt er að tíkur lóði tvisvar á ári. Þessi umrædda tík er afskaplega ljót, leiðinleg og heimsk. Þrátt fyrir það þá virðist hún vera einstaklega sexy í augum og nefi hundanna. Þegar lóðaríin standa sem hæst þá hætta hundarnir að éta og verða eiginlega óþolandi á allan máta.

Í fyrrakvöld tókst Tarzani að sleppa frá mér í göngutúrnum. Það var komið myrkur svo að ég reyndi ekki að finna hann.  Hann kom ekki heim alla nóttina þrátt fyrir frostið. Tumi sat út í girðingu og spangólaði út í eitt þar til mér ofbauð og rauk fram í þvottahús og lét kalt vatn renna í fötu og fór fáklæddur út í gaddinn og skvetti á hann. Þó flúði Tumi inn í hundahús og ég vaknaði ekki við hann fyrr en um kl 4. Þá byrjaði hann aftur. Þá var ég of framlár til að nenna að fara í aðra vantsfötuferð. Ekki mikið sofið þá nótt.

Ég þurfti svo að sækja Tarzan um morguninn út á umrætt horn.

Meðan ástandið er svona þá verð ég að hafa hundana í bandi í göngutúrum. Það er að vísu örugglega rétt samkvæt reglugerðum en afskaplega erfitt og leiðinlegt fyrir hundana og mig. Þetta eru nú engin smákvikindi!

Þetta ástand tekur vonandi enda fljótlega.....í bili.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Greyin. Svo er sagt að heilinn í okkur körlunum dingli þarna í neðra :)

Skúli (IP-tala skráð) 21.10.2008 kl. 23:10

2 identicon

Heppinn er hundlaus maður :)

PMS (IP-tala skráð) 22.10.2008 kl. 07:47

3 identicon

Hehe eiga Tumi og Tarzan ekki nóg af afkomendum fyrir :) en hvernig er thad, er von a nyjum hundi i hveratun? gekk thetta med Tuma og tikina tharna i vor?

Gudny (IP-tala skráð) 22.10.2008 kl. 08:18

4 Smámynd: Magnús Skúlason

Já þetta með tíkina hans Tuma. Ég hafði samband við tíkareigandann og hann lét fara með tikina í sónar og það sást ekkert. Þannig að ég reikna ekki með neinu. Kallinn var samt uppfullur af því að það sæist stundum ekkert í sónarnum og að sér findist á tíkinni að það væru hvolpar í henni. Mér finnst það samt rétt að reikna ekki með neinu. Ég ætla að hafa samband við kallinn aftur núna um helgina. Ef það eru hvolpar í henni þá ættu þeir að vera að fæðast um það leiti.

Magnús Skúlason, 22.10.2008 kl. 10:07

5 identicon

Halló! Þetta er ekki allt búið enn með lóðaríið.Nú er Tara byrjuð og verður örugglega lengi, því það er svo langt síðan síðast. Þú mátt búast við mörgum andvökunóttum í viðbót ,bróðir sæll! ! ! Kv. Ásta

Ásta (IP-tala skráð) 23.10.2008 kl. 07:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband